Partý Pálmar

Pálmar hressi mættur á svæðið

07.02.2009 13:50:01 / pálmar

Jæja....

Eins og flestir sjá sem detta inn á þessa síðu er ég nú langt í frá duglegur bloggari. Éh ætla svo sem ekki að hafa langan pistil en ætla að deila með þeim sem detta óvar hér inn ( sem eru eflaust ekki margir ). tveimur myndum sem ég gerði nýlega og tónlistarmyndbandi en ég samdi lagið en Svanur gerði myndbandið. 

Lagið: Aumingja hann

http://www.youtube.com/watch?v=6YhmE8BSyX0



Móna Lísa


Guðmundur Grétar


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 13:55:34 / pálmar

Jól, jóla, jóla, jóla

Gleðileg jól til allra sem ég þekki hafði það sem allra best á jólunum. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2008 18:39:29 / pálmar

Ný mynd?

Ákvað að teikna eina mynd þar sem ég hafði smá tíma. Er að reyna að halda þessu við. Nokkuð ánægður með myndina þó urðu hlutföllin ekki alveg nógu góð. Það má segja að það sé nú erfiðasti hlutinn. Þetta kemur allt saman.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 13:23:29 / pálmar

Við erum Billó........Dú Billó!

Ég og Svanur vorum að spila í brúðkaupi um helgina. Við vorum nokkuð spenntir enda brúðkaup eitthvað svo heilagt og maður vill sko gera eins vel og maður getur. Það væri nú ömurlegt ef við ættum slæman dag og myndum skemma brúðkaupsdaginn fyrir brúðhjónunum..... ekki að líkurnar á því væru miklar;);). Við Svanur tókum góða æfingu deginum áður bættum aðeins prógramið. Við þurftum líka að fínstilla okkur enda er Svanur búinn að vera á ferðalagi í nánast allan júlímánuð og af þeim sökum höfum við ekki spilað saman í nokkurn tíma.

            Það er alltaf svo gaman að spila í brúðkaupum reyndar höfum við Svanur ekki spilað í brúðkaupi saman áður. Að vísu spiluðum við í kirkjunni þegar Sjonni bróðir gifti sig en það er það eina. Þannig að þetta voru svolítil tímamót hjá okkur:haha:. Við höfum þó báðir spilað svona í sitthvoru lagi og meira segja var Svanur að spila í brúðkaupi í júlí hjá bróður sínum:).

Ástæðan fyrir því að það er svona gaman að spila í brúðkaupum er sú að allir eru í svo góðu skapi. Þannig að stemmningin er rosalega góð. Síðan er bara málið hjá okkur Svani að fleyta gleðinni áfram langt fram eftir kvöldi;). Í þessu brúðkaupi var engin undantekning þar á, fólk var í miklu stuði eða allavega stór hópur. Ég hafði á tilfinningunni að þetta væri svona meira gleði en ég hef kynnst áður en þó er erfitt að mæla gleði;). Hafði kannski áhyggjur að fólk væri farið að huga að heimför því borðhaldið var svolítið langt en fólk mætti í veisluna rétt fyrir sex og við byrjum að spila klukkan tólf. Allavega þá byrjuðum við Svanur að spila og fólk tók strax við sér:). Það er svo merkilegt að oft þegar við Svanur erum að spila þá skjóta upp kollinum tvennskonar týpur sem við tökum vel eftir og vildi það svo skemmtileg til að báðar þessar týpur voru í brúðkaupinu8|. Við erum að tala annarsvegar um glöðutýpuna sem missir sig í gleðinni og það var þarna einn sem fór gjörsamlega  hamförum á dansgólfinu. Hann tók meðal annars sláttuvéladansinn og þá var hann einn á gólfinu og svo sannalega átti hann dansgólfið:haha::haha::haha:. Þessar týpur gera mann alltaf gott því þeir rífa aðra með sér og allir fara að brosa. Ég verð eignlega alltaf glaður þegar ég sé svona týpur þær bjarga oft kvöldinu. Síðan er það hinsvegar týpan sem er alltaf að biðja um óskalög og oftar en ekki lög sem maður kann ekki en samt biðja þessar týpur alltaf aftur og aftur um þetta sama lag8|. Hún var samt ekkert svo slæm sem var þarna við Svanur höfum sko lent í þeim verri eitt skiptið þegar við vorum að spila á einhverjum pöb þá kom ein með nokkra miða og á þeim voru fullt af lögum sem við áttum að spila. Við náðum að klóra okkur í gegnum einhver lög en hún var ekki ánægð því við gerðum það ekki nógu vel8|. En allavega þessi sem var þarna þakkaði okkur sko fyrir í lokinn með kossi og alles. Meira segja kom upp á svið og tók lagið. Merkilegt nokk þá eru þessar týpur yfirleitt kvenkyns:d:d.

Jæja við Svanur byrjuðum þarna rosa vel eins og fyrr segir nema hvað....... allt í einu slít ég streng8|8|. Ég var einmitt búinn að vera velta því fyrir mér hvort ég ætti að taka með mér vara gítar en síðan hafði ég einhvernveginn gleymt því. Ég fór í gítartöskuna til að ná í gítarstrengi en vitið menn.... það voru engnir gítarstrengir í töskunni8|8|. Þá voru góð ráð dýr. Ég stillti gítarinn og hélt áfram að spila. Þetta sló mig pínu út af laginu og þar sem ég var að syngja og hugsa á sama tíma hvað ég ætti að gera þá fór textinn í Rigga robb alveg í rugl en ég held að engin hafi tekið eftir því þó að ég hafi sagt sömu setninguna 12 sinnum.... nei smá grín:haha::haha:. Síðan sá ég ekkert annað í stöðunni en að gera bara eins vel og ég gæti þrátt fyrir að vera með slitinn g-streng. Auðvitað sá ég leik á borði og kom með þennan sígilda brandara og spurði fólkið í salnum hvort einhver ætti g-streng til að lána mér:haha::haha::haha::haha::haha:.  Það virtust allir voða sáttir í lokinn og þar á meðal brúðhjóninn, það skiptir öllu og vorum við Svanur því bara sáttir með eign framistöðu;).

Ég verð að enda þetta á pínu skondnu atviki. Ein stúlka límdi miða á gítarinn sem var svona hjartalaga;). Svanur fór eitthvað að spyrja hvort væri ekki númer á miðanum og ég tók undir, þetta var voða fyndið og fólkið hló. Nema hvað...... þá kemur einhver rosa sæt skvísa og límir annan miða á gítarinn....... með númeri8|. Ég að sjálfsögðu roðnaði og vissi ekkert í hvorn fótinn ég ætti að stíga8|. Síðan þegar við Svanur fórum í hlé, tók ég spenntur miðan og las......... ,,Hringdu þegar þú ert búinn 588-5522".

Dú Billó


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 11:20:24 / pálmar

Hver er maðurinn??

Þá er það næsta mynd. Nú reynir á þá sem skoða þessa síðu, spurningin er: Hver er maðurinn?? 

Hver er maðurinn??


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.08.2008 15:30:31 / pálmar

Pálmar listamaður enn þá meira framhald....

Þegar ég vara að skanna inn myndina í gær þá fór ég að skoða myndir sem ég teiknaði hér á árum áður. Þegar ég var að fletta í gegnum þessar mis flottu myndir rakst ég á eina mynd sem ég var ekki búinn að klár en myndina teiknaði ég 2001 þannig að ég ákvað að klára hana núna 7 árum seinna. Ég skannaði þó fyrst myndina og síðan skannaði ég hana aftur þegar ég var búinn með hana. Það er svolítð gaman að sjá breitingarnar. 

 Mynd 2001



Mynd 2008


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2008 23:37:19 / pálmar

Pálmar listamaður framhald...

Ákvað að teikna aðra mynd í dag og heppnaðist hún miklu betur en í gær. Ég vandaði mig líka meira, sérstaklega reyndi ég að ná hlutföllunum betur. Það sést á myndinni sem ég gerði af sjálfum mér að hakan er aðeins of stór. Reyndar ætlaði ég upphaflega að teikna bara svona skopmynd af mér. Að þessu sinni var pabbi módelið.


Pabbi ( Snorri )




» 5 hafa sagt sína skoðun

02.08.2008 21:22:56 / pálmar

Pálmar listamaður

Það var tekið ákvörðun um að fara ekkert um verslumannahelgina, vera bara heima og hafa það rólegt8|. Ég tók mig til og teiknaði sjálfsmynd;). Hef samt ekki verið að teikna mikið síðustu ár. Það var eitt af því sem ég gat dundað mér við þegar ég var lítill. Ég teiknaði og tekinað og teiknaði:haha:. Þetta var oft á tíðum rosalegur ævintýraheimur. Það var allt að gerast í myndunum mínum. Gerði stundum hljóðin líka. Man eftir því þegar afi skammaði mig fyrir að vera með þessi læti en það er erfitt að vera 8 ára og teikna orustuvélar og sprengjur án þess að gera ekki hljóðið með:haha:. Ég litaði líka mikið, átti litabók. Get ímyndað mér að ég hafi veirið þægilegt barn, bara keypt litabók og þá fór ekki mikið fyrir mér:). Ég hélt áfram þessari listsköpun minni fram á unglingsárin og var oft fengin til að mála eða teikna á þetta og hitt en síðan hætti þetta eiginlega þegar ég fór á Selfoss. Það var engin að biðja mig um að teikna þarna við Ölfusána:|
    Ég er bara mjög ánægður með þessa sjálfsmynd þó hún líkist mér kannski ekki mjög mikið:haha: en svona miðað við að ég er í engri þjálfun þá er þetta bara nokkuð gott. Vonandi get ég gefið mér meiri tíma í þetta og ef ekki þá verður það bara í ellinni:haha:.  





» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 12:16:33 / pálmar

Stelpur í fótbolta

Ég var ekki búinn að segja hér á blogginu hvað gekk nú vel á Símamótinu. 7. flokkur ( 6 og 7 ára ) vann í flokki A-liða, var í öðru sæti í flokki B-liða og þriðja í sæti í flokki C-liða. Þetta er náttúrulega glæsilegur árangur en A-liðið hefur unnið þrjú mót af þeim þremur sem þær hafa farið á í sumar. 6. flokkurinn ( 8 og 9 ára ) gekk ekki eins vel en stóðu sig þrátt fyrir það bara mjög vel, öll liðin náðu að vinna leik:haha:.

Ég hef gríðalega gaman af því að þjálfa þessar stelpur. Þetta er líka ákveðin hugsjón hjá mér. Minn draumur er að eftir nokkur ár þá verði Grindavík eitt af sterkustu liðunum í öllum flokkum. Draumurinn er líka að sjá stelpur sem ég hef þjálfað spila í efstu deild eða með landsliðinu. Draumurinn er einnig að þær stelpur sem hafa æft hjá mér eigi eftir í framtíðinni að hugsa til þess hvað var rosalega gaman að æfa hjá Pálmari og hvað það hafi gefið þeim mikið. Raunin er nefnilega sú að fæstar af þessum stelpum verða einhverjir atvinnumenn:haha:.


Símamótsmeistara í 7. flokki A-liða
  


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 16:04:53 / pálmar

Nonni frændi eða Pierce Brosnan

Ég fór í bíó í gær með Hófí á myndina Mamma mia. Ég hef aldrei lent í aðrar eins röð en röðin náði út á bílaplan8|. Svo fólk átti sig á hve röðin var löng þá fórum við í Sambíóin Álfabakka. Við náttúrulega misstum af byrjunni en það kom ekki að sök. Þess mynd er svona ekta konu mynd;). Mér fannst myndin samt alveg ágætt og bara með betri sönglagamyndum sem ég hef séð;). Það munar svolítið um að maður þekkir öll lögin. EN... Það er ekki myndin sem ég ætlaði að fjalla heldur svolítið annað sem gerðist á meðan ég var að horfa á myndina. Ég veit ekki hvort fólk hefur lent í þessu eða kannski er það bara ég. Málið var að þegar ég var að horfa þessa blessuðu mynd, fór ég allt í einu að velta því fyrir mér hvað Nonni frændi væri nú líkur Pierce Brosnan en hann leiku eitt aðalhlutverkið í myndinni. Þannig að alla myndina var ég að velta því fyrir mér hversu líkur Nonni frændi væri honum. Var að pæla í svona ákveðnum svipbrigðum og fór að velta því fyrir mér, ætli Nonni frændi hafi tekið þessi svipbrigði frá honum, lagt sig fram við að líkjast sjálfum James Bond?? Svo fór ég að velta því fyrir mér hvað Nonni yrði leiðinlega monntinn ef ég myndi segja þetta við hann enda Pierce Brosnan náttúrulega talinn vera fjall myndarlegur og er dýrkaður og dáður af kvenþjóðinni. Síðan komu upp efasemdir upp í hugan um að þeir væru ekkert líkir, væri bara eitthvað sem mér findist en engum öðrum Þannig til þessa að átta mig á því hvort þetta sé bara rugl í mér þá setti ég myndir af Nonna frænda og Pierce Brosnan og fólk getur bara látið mig vita:haha::haha::haha::haha:.

Hvor er Nonni frændi og hvor er Pierce Brosnan?? 
                Pierceb_l                
           


Ég er bara ekki viss!!!!:haha::haha::haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2008 17:58:24 / pálmar

Risa fótboltamót í Kópavogi

Það er auðvita allt á fullu eins og alltaf. Þó hefur þetta róast aðeins þar sem ég hætti á leikskólanum um síðastliðin mánaðramót. Já, ég ákvað að hætta á leikskólanum það má segja að ég hafi einfaldlega ekki fundið mig í þessu starfi. Enda ekki auðvelt að fara vinna á leikskóla í samfélagi eins og Grindavík þar sem viðhorfið er eðlilega þannig að mennirnir eiga að vera á sjó og konurnar eiga að hugsa um börnin. Ekki að það hafi verið eitthvað sem ég fann þó mikið fyrir:haha::haha:. Ég braut líka blað í sögu Grindavíkur með því að vera fyrsti karlmaðurinn sem hefur unnið á leikskóla hér í bæ. Núna er ég að þjálfa á fullu og er einmitt núna um helgina stærsta fótboltamót í kvennaboltanum. Ég er að fara með 46 stelpur ( 6. og 7. fl ) úr Grindavík og síðan er Hófí með 17 stelpur. Þannig að þarna verða 63 stelpur á aldrinum 6-12 ára sem við erum að þjálfa.. Þetta er örugglega önnur hver stelpa á þessum aldri í Grindavík:haha::haha::haha:. Því hvet ég alla Grindavíkinga og aðra sem hafa ekkert að gera um helgina að kíkja á æfingasvæði Breiðabliks og hvetja stelpurnar úr Grindavík til dáða. Leikið er í riðlum á föstudag, laugardag og svo eru úrslitin á sunnudag. Við erum með mörg lið þannig að í rauninni skiptir engu máli hvenær fólk kemur það er örugglega eitthvað lið frá Grindavík að spila:haha::haha::haha:

Tökum þennan unga stuðningsmann til fyrirmynda og hrópum ÁFRAM GRINDAVÍK!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 23:34:12 / pálmar

Lífið er fótbolti

Júní mánuður er búinn að vera ansi strembinn og mun það ekkert breytast. Ég er náttúrulega enn þá að vinna á leikskólanum og síðan er ég að þjálfa. Þannig að ég er að vinna frá klukkan 8:00 til 18:00 alla vikra daga nema föstudaga þá er ég búinn klukkan 14:00. Og eftir 13:00 til 18:00 fær maður fá tækifæri á að setjast niður. Síðan var síðasta helgi líka heldur betur strembin á föstudagskvöld fór ég í afmæli hjá Sigg kokk og tók gítarinn og spilaði nokkur lög. Við skötuhjú gistum í bænum og vorum kominn í háttinn um eitt leitið. Ég var svo mættur niður í Laugardal klukkan 8:00 þar sem stelpurnar mínar 7. flokk hófu keppni í Bónsumóti Þróttara. Búið um klukkan 13:00. Fór til Svans upp úr fimm og við tókum æfingu og lögðum svo á stað austur fyrir fjall til að spila á ættarmóti. Búinn að spila upp úr 12:00 kominn í háttin rétt fyrir tvö um nóttina. Mættur niður í Laugardal klukkan rétt fyrir átta um morguninn þar sem stelpurnr mínar í 6. flokki hófu keppni í Bónusmótinu og var því lokið um klukkan 17:00. Síðan tók bara vinnan við á mánudeginum. Þannig á á morgun get ég sofið út í fyrsta skipti í hálfan mánuð. Ég held samt að ég eigi ekkert eftir að sofa út því ég er svo vanur að vakna klukkan átta. Síðan hjálpar ekki að þurfa sofa einn þar sem konan er stödd í Vestmannaeyjum að keppa með stelpurnar sínar í 5. flokk á Pæjumótinu en ég á góðan bangsa;):haha:. Ég og Svanur erum reyndar að fara spila á morgun á Kaffi Kidda rót í Hveragerði ( laugardagskvöld ). Þannig að þetta er ekki alveg frí helgi en samt nokkuð róleg.

 

Núna þegar skólinn er kominn í sumarfrí þá er lífið bara fótbolti. Ég er að þjálfa eins og fyrr segir 6. og 7. flokk kvenna auk þess að vera aðstoðaþjálfari í 3. og 4. flokk kvenna. Ég kann mjög vel við mig í þessari vinnu, hún er mjög gefandi. Ég hef líka verið að gera helling með stelpunum fyrir utan að láta þær sparka í bolta. Þar ber þó fyrst að nefna glæsilega söngkeppni. Þá fengum við grunnskólann lánaðan og stelpurnar fóru upp á svið og sungu í míkrafón og alles. Þær voru ýmist með undirspilið af disk eða ég spilaði undir. Það hefu líka gengið mjög vel að keppa í fótbolta t.d. unnu stelpurnar mína í 7. flokki A Bónusmótið. Samt sem áður þá er kannski ekki alltaf árangurinn bundinn í vinna mót  þó það sé vissulega ótrúlega skemmtilegt. Ég lít líka á það sem góðan árangur hve margar stelpur ég hef náð að virkja en ég er að þjálfa um 55 stelpur úr 1.-4. bekk. Ef þið hittið stelpu úr Grindavík sem var annað hvort að klára 3. eða 4. bekk þá eru um 54% líkur að hún sé að æfa hjá mér fótbolta, bara nokkuð gott;).

Um daginn fór ég að keppa með stelpurnar mínar í 7. flokki á Selfoss og voru teknar nokkrar myndir.

 
Þarna er ég að fara yfir nokkrar leikbrellur:haha:



Ég ásamt foreldrum að fara yfir stöðuna í hálfleik:haha:


Ég eitthvað að reyna að skipa fyrir en engin virðist vera að hlusta;)


Slegið á létta strengi á milli leikja, þarna er ég að taka mynd af stelpunum





» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 16:41:41 / pálmar

Dulin klámvísa eða hvað????

Ég var á leiðinni í bæinn um daginn ásamt minni heitt elskuðu;). Þá var Bjarni Ara í Beinni hjá Hemma og tók lagið Það stendur ekki á mér. Ég var svo sem ekki mikið að pæla í þessu lagi fyrr en allt í einu ein setning vakti athyggli mína en hún er svona: Láta arfinn minn falla þér í skaut sem rímar við höll:s. Þetta er smá gáta og komst ég í smá gír en samt var aðeins eitt orð sem kom upp í huga mér. Ég veit ekki hvort það sé bara ég eða hvað.. en er hann ekki að tala um böll?8|8| Böll rímar við höll. Það má segja að útlitð sé arfur frá foreldrum og því má segja að böllurinn sé arfur frá foreldrum. Í kjölfarið fór ég að sjá þennan texta í nýju ljósi er þetta kannski bara dulin klámvísa????8| Kannski er ég bara að rugla en setningar eins og Það stendur ekki á mér..... Ég skal koma nú í nótt... Ég skal ekki koma fljótt... Ég er kóngurinn þinn...... eru nú alveg hægt að misskilja8|:haha::haha::haha::haha:. Hér fyrir neðan er textinn í heild sinni.

Það stendur ekki á mér

Það stendur ekki á mér
Ég skal gera hvað sem er
Bara ef það er með þér já með þér

Það stendur ekki á mér
Ég skal koma nú í nótt
Ég skal ekki koma fljótt o.. o...til þín

Þú veist að ég stend með þér
Annað væri ekki fair
Þú veist ég er kongurinn þinn, draumaprinsinn
Ég stend við orð mín öll
Ég skal byggja þér höll
Láta arfinn minn falla þér í skaut
sem rímar við höll

Það stendur ekki á mér 
Kannski finnst þér það of frekt 
En ég vil hafa eitthvað hjá mér áþreifanlegt 

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 22:36:20 / pálmar

Boltinn farinn að rúlla

Í gær fór ég á Valur - Grindavík í Úrvalsdeildinni. Mínir menn máttu lúta í lægra haldi 3-0. Þetta var nú samt ekkert alslæmt og í fyrri hálfleik var bara nokkuð jafnræði með liðunum. Samt var eins og það væri engin stemmning í Grindavíkurliðinu. Ég fór á KR-Grindavík og þar var ákveðin stemmning og manni fannst Grindavík vera inni í leiknum nánast allan tímann. Mín skoðun er sú að það er of stór biti fyrir svona lítið félag út á landi að missa tvo lykilmenn frá síðasta tímabili og ekki nóg með að þessir leikmenn voru lykilmenn heldur búnir að spila með Grindavík í fjölda ára. Sérstaklega sé ég eftir Óla Stefáni því hann var duglegur að peppa upp stemmninguna. Hann var aðal penninn á bloggsíðu meistarflokks og var bloggsíðan orðin ein af rúntinum hjá manni þegar maður kíkti á netið. Þar fór hann hamförum í að lýsa sínu eigin ágæti eins og kóngum sæmir;) en samt sem áður duglegur að hrósa þeim sem voru að standa sig vel hverju sinni:). Núna liggur síðan niðri og þykir mér það miður, spurning hvort bloggsíðan endurspegli stemmninguna í hópnum? Væntingar mínar í sumar eru bara þær að við náum að halda okkur uppi. Næsta mánudag verður fyrsti heimaleikurinn og er hann gegn Fjölni. Ég held að þessi leikur eigi eftir að segja okkur hvernig sumarið muni verða:|.

            Ég hef líka verið að fylgjast mikið með Meistaraflokki kvenna hjá GRV sem stendur fyrir Grindavík, Reyni og Víði. Þær eru með gríðalega öflugt lið og er skemmtilegt að segja frá því að stór hluti hópsins eru stelpur úr Grindavík:haha:. Þetta minnir svolítið á Grindavíkurliðið ( karla ) fyrstu árin í Úrvalsdeild ( fyrir um 10-12 árum síðan ). Þá var stærsti hluti liðsins Grindvíkingar og liðið hélt sér alltaf uppi. Það breyttist síðan hægt og rólega og árið sem við féllum voru að mig minnir að meðaltali 2 leikmenn í byrjunaliðinu uppaldir hjá félaginu. Síðan er auðvitað hægt að spyrja sig hvort það hafi verið ástæðan fyrir fallinu eða eitthvað annað. Allavega þá hvet ég fólk að fylgjast með þessum stelpum í sumar þær eiga eftir að gera góða hluti. Þær eiga að spila sinn fyrst leik í sumar á morgun á gamla aðalvellinum byrjar leikurinn klukkan 18:00 . Leikurinn er gegn Þrótti og er bikarleikur:!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 102484